Lokað
8:00 - 17:00
Járnháls 6, 110 Reykjavík
Járnháls 6

Spurt og svarað

Þarf ég að panta tíma?
Já, við mælum með því að bóka tíma fyrirfram svo við getum tekið bílinn inn á umsömdum tíma. Þú bókar á noona.is, í síma 581-2050 eða með fyrirspurn hér á vefnum. Minniháttar mál, eins og peru- og rúðuþurrkuskipti, má oftast leysa án tímapöntunar.
Hvað kostar viðgerðin?
Tímagjald fyrir almenna viðgerð og bilanagreiningu er 17.800 kr. + vsk. á klukkustund. Fyrir föst verk eins og olíuskipti, dekkjaskipti og tölvulestur gildir fast verð sem sjá má í verðskránni. Við gefum þér alltaf verðmat áður en vinna hefst.
Fæ ég að vita af óvæntum kostnaði?
Alltaf. Ef við finnum fleira sem þarf að laga hringjum við í þig, förum yfir kostnaðinn og höldum ekki áfram fyrr en þú hefur samþykkt hann.
Hvað tekur viðgerðin langan tíma?
Það fer eftir verkinu. Olíuskipti og dekkjaskipti taka um hálftíma og tölvulestur um tíu mínútur. Stærri viðgerðir geta tekið einn eða fleiri daga og þá gefum við þér tímaáætlun þegar við höfum skoðað bílinn.
Er ábyrgð á viðgerðunum?
Já. Við veitum lögbundna ábyrgð samkvæmt lögum um þjónustukaup, bæði á vinnu okkar og þeim varahlutum sem við setjum í bílinn. Geymdu reikninginn því hann er ábyrgðarskírteinið þitt.
Hvaða bíla gerið þið við?
Allar gerðir bíla, hvort sem um ræðir fólksbíl, jeppling eða stóran jeppa. Hjá okkur starfa bifvélavirkjar með áratuga reynslu í bílaviðgerðum.
Sjáið þið um viðgerðir fyrir bifreiðaskoðun?
Já. Komdu með bílinn í yfirferð fyrir skoðun og við lögum það sem þarf svo hann standist endurskoðun, til dæmis hemla, ljós, stýrisenda og pústkerfi.
Bjóðið þið upp á dekkjaskipti?
Já. Við sjáum um umfelgun, jafnvægisstillingu og dekkjaskipti fyrir fólksbíla, jepplinga og jeppa með dekk allt að 24 tommur. Verð má sjá í verðskránni.
Bíllinn fer ekki í gang, hvað geri ég?
Hringdu í okkur í síma 581-2050. Oft er hægt að greina vandann strax í síma og ef draga þarf bílinn getum við bent þér á næstu skref.
Hvar er verkstæðið og hvenær er opið?
Bílvirkinn er á Járnhálsi 6, 110 Reykjavík. Opið er alla virka daga frá klukkan 8:00 til 17:00 og lokað um helgar.